26.10.2017 19:20:22 CET

N1 hf: Niðurstöður hluthafafundar 26. október 2017

Hluthafafundur N1 hf. var haldinn þann 26. október 2017 klukkan 16:00 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Á fundinum var samþykkt tillaga um kaup félagsins á öllu hlutafé í Festi hf. Þá var jafnframt samþykkt tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé til að mæta hluta kaupsamningsgreiðslna við kaupin á Festi hf.

Hin samþykkta tillaga felur í sér að stjórn félagsins er veitt heimild til þess að gefa út nýja hluti í félaginu að nafnverði allt að kr. 84.782.609 á genginu 115. Forkaupsréttur hluthafa að hækkuninni er felldur niður, en þess í stað, ef til kemur, er SF V slhf. veittur áskriftarréttur að allri hækkuninni, eins og nauðsynlegt reynist, til þess að hægt verði að standa við uppgjör á kaupsamningi um kaup N1 hf. á öllu hlutafé í Festi hf., frá 3. október 2017, en hluti kaupverðsins er greiddur með nýjum hlutum í N1 hf. Heimild þessi til stjórnar stendur til 31. desember 2018. Gerð skal skráningarlýsing vegna hinna nýju hluta ef til útgáfu þeirra kemur.

Á hluthafafundi í SF V slhf. hinn 26. október 2017 var tillaga um sölu á öllu hlutafé í Festi hf. til N1 hf. samþykkt. Hefur þar með öllum fyrirvörum vegna viðskiptanna, fyrir utan samþykki Samkeppniseftirlitsins, verið aflétt.

Meðfylgjandi eru uppfærðar samþykktir félagsins.

N1 hf - Samþykktir 26. október 2017