18.04.2018 21:49:16 CET
N1 birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. apríl næstkomandi.
Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 26. apríl 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri N1 mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum.
Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu N1: www.n1.is/fjarfestatengsl