22.11.2018 09:27:12 CET

Festi hf (áður N1): Birting uppgjörs 3. ársfjórðungs 2018 þann 28. nóvember 2018

Festi birtir uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2018 eftir lokun markaða miðvikudaginn 28. nóvember næstkomandi.

Opinn kynningarfundur verður haldinn fimmtudaginn 29. nóvember 2018 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 - 14 Kópavogi 3. hæð. Eggert Kristófersson forstjóri Festi mun kynna afkomu samstæðunnar og svara spurningum.

Fundurinn hefst kl. 08:30. Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 08:00. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: www.festi.is/fjarfestatengsl